Bloggsíða Binnans

Halló!!! ég heiti Binni, verið velkominn á síðuna mína

10.11.2006 12:46:21 / Binni

Myndir

Hæ aftur! Mínar myndir munu hlaðast smám saman inn á www.picturetrail.com/kristinfrakkland ef einhver hefur áhuga. 

Annars er allt fínt að frétta, alltaf nóg að gera. Næturlífið er skrautlegt og við virkir þáttakendur. Ég á mér nýjan uppáhalds bar hér í bæ, huggulegur staður þar sem er hægt að hygge sig í IKEA sófum og spjalla. Ég er á leiðinni heim að þrífa og taka til! Íbúðin okkar angar af ostum, í gærkvöldi héldum við osta-partý með nokkrum góðum vinum! Fólk kom með alls konar osta, misgóða og missterka, og auðvitað var drukkið rauðvín með. Sumir voru duglegri við ostana en aðrir, en allt var þetta fræðandi og fyrir mér franskt. Anyways!! Það væri gaman að fá fréttir frá heimalingum! 

Kv. Kristín 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 11:00:31 / Binni

Frakklandsbúar

Sæl börn.

Það er rétt að í Binnanum skal haldið lífi eins lengi og auðið er, þrátt fyrir brotthvarf nokkurra meðlima. Þá verður það líka ærið tilefni til að halda almennilegt Binnakvöld þegar heim er komið. Allavega... Fréttir frá Frakklandi: Í dag er fyrsti kaldi dagurinn síðan við komum. Það eina sem er kalt við hann er vindurinn. Hér hefur verið yfir 20 stiga hiti, sól og sumar alveg síðan við komum. Við Hinrik og Hjördís höldum rausnarbú á 2 Rue Serane í miðbæ Montpellier. Sambúðin gengur vel og það fer vel um okkur, þrátt fyrir rúmleysi og ýmsan skort. Þetta er bara fínasta íbúð, rónaíbúð eins og Grímur kýs að kalla hana eftir myndum sem hann sá. Við héldum einmitt fyrsta stóra partýið okkar á þriðjudaginn en þá var hátíðlega haldið upp á Halloween. Þar komu saman allra þjóða kvikindi. Íbúðin var vægast sagt drulluskítug eftir þetta.. og er enn því ekkert okkar hefur haft sig í að þrífa þennan óbjóð, svo mikill er hann. Við eigum núna þó nokkra vini hérna í Fransmannslandi, þó fæstir þeirra, ef þá nokkrir eru franskir. Þetta eru aðallega krakkarnir úr skólanum okkar, en það er ekkert slæmt, þetta eru fínir krakkar. Hvort sem að það verður enska eða franska sem ég kem altalandi heim skiptir ekki lengur máli. Það er ógeðslega gaman hér. 

Verð að fara í tíma núna. Skyldan kallar. Heyrumst seinna Binnar!

Kv. Kristín  


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 14:28:13 / Binni

Hæ allir

8) Er þessi síða dauð eða ??? :S  KAUPI ÞAÐ EKKI .....  :!::!::!::!::!:

Hvað segiði að vera dugleg að blogga núna - krakkar sem eru í útlandais .... Þið megið líka skrifa hér .... og við sem erum hér heima .... Höldum bara áfram djamma hér á klakanum ..... 

KOMA SVO

Kv. DíZA


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 11:44:06 / Binni

Halló Halló Halló

Hæhæ

Eru þið til í Hitting - Barðavoginum á Laugardaginn :) :o :lol:   Snakk & Áfengi :!: :!: :!:  ´

Hóa nokkrum saman í PARTÝ  - Kveðja alla sem eru að fara af klakanum ....

Eru allir hættir að skoða þessa síðu .... verðið að vera duglegar að skrifa þegar þið farið út stúlkur......

Kv. AldíZ (látið mig vita hvort þið nennið)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 22:08:33 / Binni

Roskildeeeee!

Sniiillllld!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 17:18:37 / Binni

New......

Just letting you know that ....

ég er komin með einka-blogg....... og er slóðin á þeirri myndarlegu síðu..

katrinyr.bloggar.is    

Kann reyndar ekkert á þetta ennþá... kann ekki einu sinni að setja inn myndir eða neitt.. hehe... þetta kemur með æfingunni !!!!

well... have a nice one....

-Kate !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 12:06:59 / Binni

Boring-Loring-Soring-Job!!!

Jiiiiiihhhh hvað mér leiðist óskaplega á morgunvöktum.... Það er alltaf brjálað að gera milli kl hálf 8 og hálf 11 en gjörsamlega dautt þangað til kl hálf 1 !!!

Ég er búin að skoða held ég bara allar bloggsíður vina minna og bara allar síður sem ég finn a.m.k 3x .. búin að lesa öll dagblöð og búin að sótthreinsa húsið ..... 8| Nú hugsið þið lesendur góðir "geggjuð vinna, þarf ekki að gera neitt og er á launum" :Þ ...en það er án gríns helvíti leiðinlegt að vera ein í marga klukkutíma og ekkert að gera ...... shjæsé .....

En já það er hörkudjamm á morgun og skora ég á sem flesta að gera slíkt hið sama... ég lofaði víst sjálfri mér að ég myndi verða svaka dugleg að djamma í sumar........ ekki búin að vera mjög virk í vetur.... so að nú á að taka á því ...:lol:

Hér með óska ég eftir driver og björgunarsveitarfólki til þess að veiða mig úr bænum um 6 leytið á sunnudagsmorgun ..... takk fyrir :haha: :P

Annas var ég að frétta að það ætti að halda svaka Techno-Trance geðveiki hátíð .. nánar tiltekið "Sensation Iceland" þann 19 ágúst 2006 í Kaplakrika!!!!

Fyrir þá sem ekki vita hvað Sensation er þá er það 6 tíma dansveisla sem er alltaf haldin í Hollandi ....með 12 heimsfrægum DJum ... Dresscode : strákar eiga að mæta í svörtu og stelpur í hvítu.... ef þú mætir öðruvísi er þér ekki hleypt inn takk fyrir !!! :haha:                 

Algjör geðveiki !!!!

En já.... vildi láta heyra í mér... I´m not dead !! Just bored .......

-Kate


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 21:27:00 / Binni

Hej!!

Eg var ad koma til Stokkholms.. sjaesinn... mikid ferdalag. Koben, Älghult, Stokkholmur, Mon og svo  Roskilde! Tad er buinn ad vera steikjandi hiti og sol, vid erum alveg ad kafna! Erum buin ad skoda mikid, labba mikid og gera mikid, afsloppun i Stokkholmi i bili. Allavega.... vildi bara segja hae! Bestu kvedjur, Kristin


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 14:50:31 / Binni

Chernobyl

Hér er linkur á heimasíðu sem sýnir ljóslifandi afleiðingar Chernobyl slysins á fólk sem á heima þar í nágrenni ......

Þetta er 37 mynda slide show með tali frá ljósmyndara sem hefur verið að rannsaka þetta...

ÞETTA ER EKKI FYRIR VIÐKVÆMA...  þarna eru börn.. sem eru ekki börn ........

http://www.magnuminmotion.com/essay_chernobyl/

-Kata

Enn og aftur !! úfffff........


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 09:45:55 / Binni

Difference in Men and Women's Friends!!!

Difference in Men and Women's Friends!!!

Friendship Between Women:
A woman didn't come home one night. The next day she told her husband
that she had slept over at a girlfriend's house. The man called his wife's
10 best friends. None of them knew anything about it.

Friendship Between Men:
A man didn't come home one night. The next day he told his wife 
that he had slept over at a buddy's house. The woman called her husband's 10
best friends. Eight of them confirmed that he had slept over, and two claimed

that he was still there.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 09:15:56 / Binni

Eru þið til í SumarBinna

Hæhæ

Er ekki kominn tími fyrir Binna ???? Var að hugsa um að bjóða ykkur í mat fljótlega... Hvenær eru þið skvísur lausar =).... Það væri gaman að hittast og gera Eitthvað skemmtilegt........

Ég var að hugsa um dag sem við gerum eitthvað... Go-kart or someth.... og svo elda um kvöldið og fá okkur bjór..... jafnvel fara í sumó???


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 08:28:08 / Binni

á ekki að djamma í kvöld????????

Hæhæ!!! :) ætla ekki allir að mæta í afmælið hjá Valla & Dóra í kvöld ... það verður ábyggilega svaka stuð á liðinu 8) .... Annars var Svava líka að bjóða í sitt afmæli verður maður ekki að reyna komast á báða staði????:D

ANYHOW!!!! ÞÁ ER ÉG AÐ FARA DETTA Í ÞAÐ .... :) ÆTLA EKKI ALLIR Í BINNANUM AÐ JOINA ???? ANNARS VERÐ ÉG BRJÁLUÐ:klikk:

Kveðja:!: Aldís


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 14:10:34 / Binni

hvað er enginn að tjékka á Binnanum!!!!!

SSSSSÆÆÆÆÆLLLARRRR......

helv... ljóti dagur.....

dagurinn byrjaði þannig að ég svaf svona nett yfir mig, sofnaði ALLTOF seint þar sem vakti ALLTOF lengi við að lesa Engla og djöfla eftir Dan Brown!!!! djöff... klikkun:)... Heyrði ég var gegt sein að koma mér af stað, mála mig, finna föt, slétta hárið og drífa mig svo út í bíl.... OK! ég kem út í bíl og getiði hvað bíllinn fer ekki í gang get ekki snúið HELV... lyklinum sem er búið að vera vandamál í smá tíma en allavega, ferðin í vinnunna gekk svo sem ágætlega þangað til ég er kominn í bílahúsið hér á laugaveginum... ég er að leggja og náttla held að ég sé með mesta pláss í HEIMINUM og klessi á dekkið á einhverjum HELV.. jeppa ... ég náttla fer í sjokk, drep á bílnum get svo ekki startað honum í smá tíma (aftur get ég ekki snúið lyklinum) ég náttla fer smá að væla og fer út úr bílnum og geng í vinnunna til þess að skrifa note um að ég hafi klesst bíl viðkomandi, háskælandi með Halla í símanum (sem b.t.w gæti ekki verið rólegri og elskulegri í svona krísu) að reyna að skrifa afsökunarbeiðni með símanr. sem ég síðan setti undir rúðuþurrkurna. En það sást ekki neitt á hvorugum bílunum þorði ekki að taka sjénsinn þar sem myndavélar eru út um allt í bílageymslunni og þegar ég kom upp aftur glotti gaurinn í afgreiðslunni gegt til mín. ljóta fíbl.... ég er brjáluð og greinilega þarf að fara nota gleraugu þegar ég er að keyra.... núna er ég á HUNDLEIÐINLEGA excel námskeiði, fyrir byrjendur! WHAT!!! ég er læra það sem ég lærði í 7bekk skilurrru!!!! verð hérna í sama pakkanum til 4, tvo tíma í viðbót :evil: Ömurlegasti dagur EVER, hingað til..... ætla að reyna komast á Hlátursnámskeið kl.17:30 og hlægja í klukkutíma.. get ekki annað sagt en að ég eigi það skilið.... ég hef ekki enn heyrt í þeirri manneskju sem ég klessti á.... vona að þetta sé ekki einhver klikkhaus sem lætur mig heyra það og rukkar mig um milljónir fyrir ekki neitt :( ég er sjúklega stressuð yfir þessi, með hnút í maganum... svo Halli góði, sagði mér að setja sitt símanr líka því þá gæti hann talað við viðkomandi og segja mína hlið.... :S ég er algjör nölli.....

 

jæja vona að dagurinn sé betri... hinum meðlimum Binnans...

ein á bömmer..... Aldís .....

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 14:35:32 / Binni

Útskrift MS 2006

Þvílíkur dýrðardagur !!! Ég ætla aðeins að deila því með ykkur hvernig laugadagurinn minn var........ :D

*09:00 -  fór  á hárgreiðslustofu og lét gera fínar krullur í hárið mitt ...8)
*10:00 - fór að kjósa !! X-S !! 8| :!:
*12:30 - Myndataka.. ljósmyndarinn að missa það !!kátust -kátust!! - hvar er brosið??? :haha:
*15:00 - fór í fína pilsið mitt og bolinn .. í skónna sem eru ekki lengur hvítir og mátaði húfuna ... :!:
*15:30 - komin með far í toppinn eftir húfuna
Smá panik og stress !!! 8| :^)
*16:00 - útskrift MS í Háskólabíó .. allir ógeðslega fínir og sætir .. Ég, Aldís og Lilja fengum ekki verðlaun fyrir kjörsviðsverkefnið okkar.. sem er helvíti skítt ....:klikk:
*19:00 - veislan mín byrjaði með trompi í Kiwanis í Mosó- hvítvín og snittur !!:P Fékk fullt af fallegum gjöfum ;)
*22:00 - fór heim til mín með stuðboltunum í veislunni .. PARTÝ!! Gréta og Erla María frænkur að missa það í keppni í að halda niður í sér andanum.. 8)
*Um ca.. 01:00 - fórum í bæinn ! Ég, Addi, Bryndís, Sif, Thelma og Anna ... :D
*fórum á Hressó og Pravda ... allir að knúsast og óska hvorum öðrum til hamingju ?!;)
*einhver útlendingur að reyna við mig ! fannst ég vera svo damn sexy with this beautiful hat !! HAHA
*EINHVER HÁLFVITI HRINTI MÉR Á DANSGÓLFINU .. án gríns þá stóð ég bara kjurr.. og hann hrinti mér ???!!! ..
*Thelma ætlaði að vaða í hann
*og seinna ætlaði Addi að gera það sama :whut:
*bjór- staup -staup- hvítvín - bjór 8)
*fórum á aðra misjafna skemmtistaði Reykjavíkurborgar...
og hittum fullt af skemmtilegu fólki ....:lol:
*04:00 - ég og Addi fórum að tygja okkur heim.. ég ráfaði um götur leitandi af "húfutaxa" og loksins fann ég einn og spurði ég þá bílstjórann hvort hann væri svona "húfubílstjóri" (ein nett á því ..montin með húfuna sína) :lol: :haha:

....Síðan man ég ekki meir....:$

En vil þakka öllum sem skemmtu sér konunglega með mér á laugardaginn..
Þetta var algjör snilld og ég trúi ekki að þetta sé búið !!

GO MS !! :haha:

-Kate 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 14:39:05 / Binni

sælar...

til hamingju að vera búin með prófin og vera búin að fá einkunnir.... efast eki um að öllum hafi gengið DÚNDUR vel..... allavega til hamingju með þetta allt saman börn!!!! kv. dísa :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Tenglar